Fróðleikshornið
06.12.2005 23:25:01 / gullli

6.12.2005

ég hef komist að því að þýska er eitt það óskiljanlegasta mál sem er til. ég er buinn a vera hérna að reyna að brjóta heilann á mér yfir þessari þýsku í alveg óendanlega langan tíma. ég ætla reyndar ekki að ganga alla leið eins og hún birna og bara brjóta á mér hausinn, en ég er nokkuð viss um að hún hafi akkurat verið að læra þýsku. já krakkar mínir, það er stórhættulegt að læra þýsku.  það er alveg fáránlegt hvernig þýskalandstalandar þola sjálfa sig þegar þeir þurfa að setja sagnorðin aftast í setninguna.. hvernig er það hægt?? þá veistu í rauninni aldrei hvað er verið að segja fyrr en setningin er búin. til dæmis:
 
það er einhver að tala við þig og hann byrjar á setningunni ég er að til afganistan og  þú alveg geggjað spenntur að heyra hvað hann ætlar að gera, og svo alveg kemur aftast í setningunni FLYTJA.  vúúúúhúú og allir halda party, við fengum að vita hvernig setningin endaði. heimsku þjóðverjar geta ekki bara talað eðlilega eins og allir aðrir í heiminum fyrir utan fólk frá suzuki sem talar sona "tlokk""tlikk" mál sem enginn skilur heldur, en ég er samt viss um að sagnorðin þeirra koma ekki aftast, já það fólk hefur sko vit í kollinum.
 
Annað sem ég ætla að drulla yfir þetta tungumál er Kugelschrieber.
já það voru ekki allir sem vissu að þetta fáránlega orð þýddi einfaldlega "kúlupenni" maður þarf að segja þetta orð eins og maður sé að leika hljóð úr skröltormi. en ef þið prufið að kaupa hljóðbækur á amazon.com og hlusta á skröltorma, þá heyriði að þetta er alveg eins. helvítis þjóðverjar að leika eftir dýrahljóðum og láta svo okkur aumingja íslendingana rembast við að læra þeirra skröltormamál.
 
svo er það orðið gekämpft. þetta er næstumþví jafn leiðinlegt orð og skröltormaorðið hérna á undan, en þetta orð er samt skemmtilegt að því leyti að það lýsir þýskunni alveg. þrír síðustu stafirnir eru pft.  og eins og þeir sem hafa lesið andrésblöð í gegnum árin vita að þegar maður segir pfft, þá er það sona "iss" og sona dustar þessu frá, en það er akkurat það sem á að gera við þetta helvítis tungumál, dusta þessu bara frá og segja þjóðverjum að taka upp eitthvað annað mál, eins og ensku eða litáensku.
 
(þetta er svo ónytt forrit að ég gat ekki tekið Bold af þegar ég skrifaði textann hérna fyrir neðan, öruglega windows 92)

Svo eru það þjóðverjarnir sem kunna alveg ensku, en eru svo djöfull sjálfselskir að þeir þykjast ekki einusinni kunna hana. við lentum í þessu oftar en einu sinni og oftar en tvisvar á leið okkar um þýskaland síðasta vor. fórum inn í sjoppu, og byrjuðum "do you sp. (og þá var tekið frammí fyrir okkur) NEIN!!! UNTER HABE INCH LABENDER UND IHM SICHER AHM DER SIELIBSTENGE JALENUNG. og þá varð maður að reyna á þýskunni alveg eins og hreindýr.. helvítis helvíti

þetta eru bara allt hommar


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.11.2005 23:50:49 / gullli

22.11.2005

það er jólafrí eftir 2 og hálfa viku, og mér og öllum jólasveinunum hlakkar rosa til því þá koma jólin, enda heitir jólafríið jólafrí útaf því að jólin eru í þessu fríi.
ég lofa þér..promise promise promise

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.11.2005 12:43:35 / gullli

22.11.2005

ég er viss um að Hellboy spilar þennan leik HAHA

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.11.2005 12:23:32 / gullli

21.11.2005

DJ Nings stendur fyrir diskóteki í samkomuhúsi grundafjarðar á föstudaginn. 5000 kall inn, enda DJ Nings heimsþekktur og það var ekki auðvelt að fá hann til landsins. Nings áritar svo nýjustu plötu sína Maurice Raynal í Kósý á laugardaginn milli 4-6.

» 72 hafa sagt sína skoðun

20.11.2005 19:11:55 / gullli

20.11.2005

I have no job

I have no money

I have no car

But, I´m in a band


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.11.2005 23:35:25 / gullli

19.11.2005

ég er á rúntinum. partí partí

spakk og hagettí


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.11.2005 16:38:21 / gullli

18.11.2005

afhverju er málshátturinn "sjaldan fellur eplið langt frá eikinni"?

ég sem hélt alltaf að epli yxu á eplatrjám.


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.11.2005 16:53:36 / gullli

17.11.2005

Sona í tilefni þess að jólin eru í næsta mánuði set ég inn bestu jólasögu í heimi.
Sagan um hreifihamlaða jólaköttinn gerist á afskekktu sveitasetri á Vestur íslandi, nánar tiltekið á Arnarstapa. Það var dimmt, það var rafmagnslaust.
Palli litli fór niður í eldús að horfa á barnatímann. En það vantaði öll jólaljósin, ekki gengu þau fyrir vetni…
Nei þau gengu fyrir rafmagni. Bærinn Arnarstapi, þurfti hetju… ekta hetju. Þá kemur gamall félagi okkar og bróðir og við hleypum honum inn í söguna. Þessi bróðir nefnist HHJK. (hreyfihamlaði jólakötturinn) Hann átti heima á afskekktu svæði utan Stapans. En HHJK (hreyfihamlaði jólakötturinn) átti óvin. Það var Bold Mouse jr. with two heels að dulnefni, og eru fræðimenn enn að reyna að tengja þessi tvö nöfn saman. (þetta sýnir fávisku fræðimanna í garð ensku). Bold mouse jr. var stórt nafn í undirheimum Arnastapa og var í sterkum tengslum við Færeysku fjallamúsamafíuna. En víkjum nú sögunni að Ben Affleck sem leikur hinn magnaða Hreifihamlaða Jólakött (með átta hæla en það skiptir ekki öllu) Hreyfihamlaði Jólakötturinn er af eðalskattaætt ,,putomus alfredus,, sem hafa sæmt forsíður margra virtra kattatímarita, svo sem "kötturinn í sekknum", "konungskettir" og hið enska virta tímarit "bloody cats" þar sem ritstjórinn er hinn virti Dr. freelander mas hiplotes IV. Þess má geta að HHJK (hreyfihamlaði jólakötturinn) lék líka stórt aukahlutverk í hinni heimsfrægu mynd Star wars. Hreyfihamlaði Jólakötturinn ólst upp á hálendi Íslands í návist dúfna og annars ósóma. Hann var sterkur strax á barnsaldri og varð strax nefndur dr. Magnús, enda sæmdi hann því heiti fyllilega og hafði fullkomna stjórn á ábyrgðinni sem því nafni fylgdi.Þegar Dr.Magnús( hreyfihamlaði jólakötturinn ) var 2ja vetra barðist hann við bould mouse,föður bould mouse jr. og gjörsigraði hann á tæknilegu rothöggi þegar hann sparkaði kynfærum bould mouse upp í háls og hann kafnaði í 3.lotu.Fögnuðurinn var gríðarlegur og stemningin var í hámarki meðal almennra borgara,en enginn vissi að bould mouse ætti son sem vildi hefna föður sín þótt síðar væri.Víkjum þá sögunni aftur til Arnarstapa þar sem hreyfihamlaði jólakötturinn (Dr.Magnús) var að vígbúast.Hann og hans fylgdarlið voru við öllu búnir svo sem uppreisn maura,öflugu driti dúfnanna og öðru slíku hyski.En bould mouse jr.var heima að fitla við sig og bjóst undir blessun bjúgunar.En allt í einu réðst HHJKOHF(hreyfihamlaði jólakötturinn og hans fylgdarlið)inn á heimili bould mouse jr. og hertóku eldhúsið og gerðu það að pólitískum flóttamannabúðum sem rúmuðu allt að 10000 mýs á fengitíma.Nú réðst HHJKOHF (Hreyfihamlaði jólakötturinn og hans fylgdarlið) á bould mouse jr.(with two heels en það skiptir litlu máli) og veittu honum mikla höfðáverka,en í öllum hasarnum tróð Bould mouse jr. sjónvarpstæki upp í afturenda HHJK (hreyfihamlaði jólakötturinn og hans fylgdarlið) og veitti honum mikla áverka.En þegar enginn átti von á kom færeyska alígæsin Arnljótur og sagði: "Vald þú eigi vígi, vertu ótyrrinn, fyrri, morðs við mæti-Njörðu, mér heitið því, sleitu. Baugskyndir hjálp þú blindum, Baldr hygg þú að því, skjaldar, illt kveða háð og höltum, handlausum tý, granda.Og veitti hann þeim banahögg í síðu. Færeyska Aligæsin bjargaði jólunum og liði góðu lífi á stóru sveitasetri í hjarta Arnastapa. En HHJK(hreyfihamlaði jólakötturinn) verður minnst sem hetju hálendisins og eins dags bónda um alla eilífð.

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.11.2005 00:45:43 / gullli

16.11.2005

eg verð ekki heima a morgun.
þettaa er pistill dagsins.
.
og nú í 12-13 ára stelpuútgáfunni.
´
.
hæ þúst í dag vaknaði ég klukkan þúst 3 mín. yfir 11:lol::lol: og mamma kom og sagði að ég ætti að vakna8|8|, og mér langaði bara ekkert að vakna skiluru:klikk: og ég fór fram:) og labbaði 12 skref fram8| og svo rak ég stóru tánna í hurðina:frown::frown: og það var ógislega vont:!::!::!: og svo labbaði ég fram í eldhús:lol::lol: og tók geðveikt stóran hníf:haha::haha::haha: það var svo geðveikt svalt:!::!::!: og svo drap ég hundinn og drekkti kisunni
.
.
OG hvað má læra af þessari litlu dæmisögu?? jú, ekki vera 12-13 ára stelpa og eiga bloggsíðu.. það fer alltaf allt í vitleysu á endanum

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.11.2005 13:36:06 / gullli

15.11.2005

Silvía Nótt er mesti snillingur í heimi

» 7 hafa sagt sína skoðun

14.11.2005 11:42:05 / gullli

14.11.2005

 
Þessir þrír virðulegu karlmenn fengu viðurkenningu í klúbbnum sínum Einstaklega Sætir og Ríðulegir Indíufarar. þeir fengu viðurkenningu fyrir að vera súper sætir, enda sést það á myndinni að þeir eru sko ekkert slor. Sá sem er vinstra megin er Jack Dangermond, forseti félagsins en hann var í fyrra kjörinn fallegasti karlmaður skandínavíu. til hægri er Mike Weir, en hann var fyrstur til að fara svona fallegur til Indíu.,  Markku Villikka stendur í miðjunni og er hann frægt finnskt hármódel. Markku vann þessi verðlaun líka árið 2001 og hér er mynd af vinningshópnum síðan þá.
 
Keppnin var hörð, en í henni kepptu þeir félagar á móti mörgum fallegum hópum, þar má helst nefna Fredrich Källstrup (í miðjunni í ljósu jakkafötunum) og hópinn hans, en þeir voru dæmdir úr keppni þar sem einn karlmaðurinn var kona, og sést það augljóslega hægra megin á myndinni. Smá klikk þarna... þeir hafa eitthvað miskilið reglurnar.
 
Svo má ekki gleyma þeim sem urðu í öðru sætinu, en það voru Timm Tremmons og hans fylgdarlið. Það munaði litlu að þeir hefðu verið dæmdir úr keppni líka fyrir að vera með konu í hópnum, en það mál var afskrifað þar sem talið var að hún væri of ljót til að hafa áhrif á niðurstöðurnar.
En ef maður athugar myndirnar gaumgæfilega má sjá að Timm Tremmons sá sem er í ljósu jakkafötunum er greinilega Fredrich Källstrup sjálfur, en hann er frægur svindlari og lygalaupur. Það er auðvelt að komast upp með þannig hluti ef maður er svona fallegur eins og hann. Það mál verður ekki tekið fyrir fyrr en á næstu ráðstefnu ESRI á næsta ári, en talað er um að hleypa Fredrich ekki til Indíu að keppa. En það á allt eftir að koma í ljós.
 
 
Ég vil nýta tækifærið og óska þeim Jack, Markku og Mike til hamingju með sigurinn.
 

» 4 hafa sagt sína skoðun

13.11.2005 16:22:14 / gullli

13.11.2005

sænska stelpan í grundafirði er alltaf full.


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.11.2005 16:01:20 / gullli

12.11.2005

Andrew Johnson átti virkilega erfiða æsku. Hann á nú metið í hold the button leiknum, en það er 18 ár og 16 klukkustundir.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.11.2005 12:56:13 / gullli

11.11

Spergilkál er ekki eins viðkvæmt fyrir kálflugu eins og aðrar káltegundir
hér sjáum við mynd af kálflugu í árásarhug:
spergilkál hentar vel til frystingar. og er frosið spergilkál virkilega nytsamlegt. Með því má slá fólk, kæla brunasár, og sýna fólki frá afríku það. en fólk í afríku sér ekki oft frosið spergilkál.
Það borgar sig að gera  stórinnkaup á spergilkáli þegar verðið er lágt og frysta það til vetrarins. en yfir vetrartímann er mikill "þurrkur" á spergilkálsmarkaðnum og rýkur verðið upp í 5000 kall á úsnuna!!
spergilkál var mikið notað í gamla daga þegar loðnir menn bjuggu til kylfur úr því til að klóra sér á bakinu, en þær brotnuðu flestar:(

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.11.2005 14:56:19 / gullli

10.11.2005

 
Angelina Jolie er miklu flottari en Jennifer Aniston (engifer asinton). og það er bara engin spurning um það birna mín!!!

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2